Lögreglan: jens neitar sök

Jens Gunnarssyni, þrautreyndum fíkniefnalögreglumanni sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald 29. desember, var sleppt í gær, fimmtudag. Hann neitar staðfastlega sök en honum er borið á brýn að hafa þegið greiðslur frá þekktum brotamannni fyrir upplýsingar um mál í rannsókn lögreglunnar.

Sá hefur hlotið dóma fyrir fíkniefnamisferli en var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. janúar. Þetta kemur fram á vef Fréttatímans í dag.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurðinn í samtali við blaðið í gær. Hann sagði að rannsóknin héldi nú áfram en ekki hefði verið talið nauðsynlegt að fara fram á frekara gæsluvarðhald yfir lögreglumanninum.

Handtakan hefur verið sögð tengjast tálbeituaðgerð lögreglunnar í máli hollensku konunnar Mirjam Van Twuyer í apríl í fyrra en hún situr nú af sér ellefu ára fangelsisdóm fyrir fíkniefnasmygl. Heimildarmenn Fréttatímans segja að svo sé ekki, allavega á þessu stigi málsins. Eina tengingin sé sú að Jens kom að rannsókninni. Í aðgerðinni vakti athygli og var gagnrýnt að maðurinn sem tók við fíkniefnunum var handtekinn áður en hann gat skilað þeim til höfuðpaursins í málinu.

Uppnám er innan lögreglunnar vegna málsins en áratugir eru síðan lögreglumaður hefur verið settur í gæsluvarðhald vegna brota í starfi: \"Þetta er afar sorglegt, segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarlögreglustjóri: \"Þetta sýnir samt svart á hvítu að kerfið virkar og þegar svona mál koma upp, þá hlífum við engum,“ segir hún í Fréttatímanum í dag.