Lögreglan hafi verið kölluð til tvívegis áður en morðið átti sér stað

Lögreglan var að minnsta kosti kölluð tvisvar til að Barðavogi síðasta sólarhringinn áður en karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn þar í gær.

Fréttablaðið greinir frá.

Heimildir blaðsins herma að atburðir gærdagsins hafi haft nokkurn aðdraganda.

Greint var frá því í gær að lögreglan hafi til rannsóknar hugsanlegt manndráp í Barðavogi í austurbæ Reykjavíkur.

Samkvæmt heimildum RÚV voru mennirnir nágrannar og er hinn látni talinn hafa verið fæddur 1975 og meintur gerandi 2001.

Lögreglan muni krefjast gæsluvarðhalds yfir honum síðar í dag.