Gestir Menningarnætur Reykjavíkurborgar fóru með friði fram eftir morgni að því er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir, en þrátt fyrir gríðarlegan fjölda fólks sem sótti hátíðina að þessu sinni gekk allt slysalaust fyrir sig.
Upp úr klukkan tvö í nótt var þó tilkynnt um hópslagsmál ungmenna á Lækjargötu. Einn þátttakenda fékk far með lögreglu á slysadeild en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsl hans eru. Rúmlega fimm var aftur tilkynnt um líkamsárás í Lækjargötu. Þá var maður sleginn í höfuðið svo úr blæddi.
Lögregla fékk einnig nokkrar tilkynningar vegna fólks sem svaf ölvunarsvefni á gangstéttum og umferðareyjum. Flestir komust til síns heima fyrir tilstilli lögreglu en þeim sem ekki var hægt að koma heim voru fundin önnur úrræði.