Lögreglan á Akureyri setti bíl á uppboð – Valbjörn kom með besta svarið

Lögreglan á Norðurlandi eystra, sem hefur höfuðstöðvar sínar á Akureyri, birti í gær mynd af bíl sem boðinn verður upp í dag. Það er ekki frá sögum færandi fyrir utan að myndin er ekki í sérstaklega góðum gæðum.

Í Facebook færslu lögreglunnar segir: „Hér er mynd af bílnum sem boðinn verður upp á morgun.“

Þá kom Valbjörn nokkur með besta svarið undir myndinni: „Mér sýnist þið ættuð að nota eitthvað af peningnum sem fæst fyrir hann í myndavél.“ Uppskar hann mikla kátínu meðal netverja.