Gísli Þór Þórarinsson og sambýliskonu hans höfðu tilkynnt lögreglu um morðhótanir áður en hann var myrtur á heimili sínu í Mehamn í norður Noregi í apríl síðastliðnum. Þetta kemur fram á Vísi sem vitnar í vef norska ríkisútvarpsins NRK. Þar er spurt hvort að lögreglan hafi gert það sem í hennar valdi stóð til að vernda Gísla og sambýliskonu hans. Gunnar Jóhann Gunnarsson hálfbróðir Gísla braut nálgunarbann gegn Gísla og sambýliskonu hans tveimur dögum fyrir morðið.
Þá kemur einnig fram að Gísli og sambýliskona hans hefðu frétt að Gunnar hefði náð að útvega sér skotvopn. Voru þau hrædd um að Gunnar myndi nota það. Greindu Gísli og sambýliskona hans lögreglu frá þessu en þrátt fyrir það var ekki leitað á heimili Gunnars.
Bæjarstjóri Gamvik, Trond Einar Olaussen segir þetta grafalvarlegt. Þá er rifjað upp annað óhugnanlegt atvik sem átti sér stað á svipuðum slóðum fyrir þremur árum. Þá myrti 59 ára maður konu sína og son og reyndi síðan að fyrirfara sér. Konan hafði áður beðið lögreglu um aðstoð og að skotvopn yrði tekið af manninum. Það var ekki gert.
Hér má finna ítarlega umfjöllun Vísis.