Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag kemur fram að maður hafi ógnað vegfarendum með hníf í miðborginni nú snemma í morgun. Var viðkomandi handtekinn og fannst þá í fórum hans nokkuð af eiturlyfjum í söluumbúðum ásamt miklu magni peningaseðla. Var viðkomandi því vistaður í fangageymslu grunaður um vopnalagabrot og sölu fíkniefna. Einnig var lagt hald á annan hníf sem fannst á þriðja aðila í nótt. Ekki þurfti að vista hann í fangageymslu
Lögregla tekur fram í kynningu sinni að „Mikið hefur verið um útköll að undanförnu þar sem hnífar koma við sögu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og varð engin undantekning á þennan daginn.“
Þá segir lögregla „Rétt er að benda á að samkvæmt vopnalögum er vopnaburður á almannafæri bannaður, jafnvel þó um sé að ræða „sakleysisleg“ vopn eins og litla vasahnífa, nema sérstakar ástæður séu fyrir vopnaburðinum, svo sem vegna vinnu eða veiða“