Ríkisstjórn Spánar í Madríd hefur flotið á því að leita stuðnings utan Katalóníu. Og utan Spánar og þá einna helst í Brussel. En hefur hún stuðing konungs Spánar? Þessu leitast fréttaskýrendur á Spáni við að svara. Kaþólska kirkjan gegnsýrir enn flesta þætti mannlífs á Spáni og lætur mikil að sér kveða í umbúðmiklum trúræknisathöfnum. Afstaða hennar vegur þungt.
Konungur Spánar og stjórnmálaflokkar fylgjast með gerðum ríkisstjórnarinnar í Madríd. Konungssinnar verða að minnast þess að Francisco Frankó kaus föður núverandi konungs (Juan Karl) fram yfir afa konungsins (Don Juan). Núverandi konungur tók við umboði föður síns sem tók við því af einræðisherra. Árið 1947 þóknaðist Frankó einræðisherra spænskum konungssinnum. Kóngur skal vera karlmaður og Spánverji að ætt og að minnsta kosti 30 ára. Þetta staðfestu Spánverja í þjóðaratkvæði.
Nú þarf konungur að meta hversu sterk staða hans er innan Spánar og utan. Það ræðst af því hvort hann leggst á sveif með ríkisstjórninni í Madríd eða hann kemst að samkomulagi við her og lögreglu um tryggja innlandsfrið.
Nánar www.elpais.com www.voanews.com