Lögmenn stofna félag til varnar tjáningarfrelsinu

Hótanir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að stefna þremur fjölmiðlum vegna umfjöllunar um Wintris og skattamál þess hefur gengið fram af mörgum í dag.

Þeirra á meðal er Ómar R. Valdimarsson lögmaður og félagar hans í stéttinni, sem tilkynntu í dag um stofnun félagsins Ritfrelsi.

Í því verða starfandi lögmenn sem bjóðast til að taka að sér verja fjölmiðla í slíkum málum endurgjaldslaust.

Ómar segir hótanir á borð við þær, sem Sigmundur Davíð lét hafa eftir sér „til þess fallnar að þagga niður í óþægilegum röddum með peningaafli enda geta meiðyrðamál reynst blaðamönnum dýr, jafnvel þegar þau eru tilhæfulaus.“