Steinbergur krefst tíu milljóna í bætur: varð fyrir miklu sálrænu áfalli

Héraðsdómslögmaðurinn Steinbergur Finnbogason hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir þriggja sólarhringa frelsissviptingu sem hann sætti fyrir rúmum þremur árum. Steinbergur krefst tíu milljóna króna í bætur. RÚV.is greinir frá.

Þegar Steinbergur var úrskurðaður í gæsluvarðhald var hann grunaður um aðild að fjársvikamáli skjólstæðings síns. Skjólstæðingur hans var síðar dæmdur en málið gegn Steinbergi látið niður falla.

Steinbergur krefst fimm milljóna króna í miskabætur fyrir ólögmæta frelsissviptingu og ærumissi sem hafi fylgt henni og því að vera með réttarstöðu sakbornings í nítján mánuði. Hann hafi orðið fyrir miklu sálrænu áfalli við aðgerðirnar og glímt við áfallastreituröskun.

Steinbergur krefst svo fimm milljóna króna til viðbótar í skaðabætur fyrir atvinnumissi. Hann hafi ekki getað sinnt störfum sínum á meðan hann var í haldi lögreglu og verið óvinnufær í viku á eftir, auk þess sem hann hafi misst mikil viðskipti. „Störfum hans sem verjandi fækkaði verulega og engin þrotabú hefur [Steinbergur] fengið úthlutað frá héraðsdómi eftir þessar aðgerðir lögreglu,“ segir meðal annars í stefnu Steinbergs.

Eftir að hafa sent kröfubréf til ríkisins og farið fram á milljónirnar tíu svaraði ríkislögmaður Steinbergi og bauð honum var 800 þúsund krónur í miskabætur, auk 300 þúsund króna í lögmannskostnað. Steinbergur hafnaði sáttaboðinu og telur bótakröfu sína hóflega.

Leitað í herbergjum dætra Steinbergs

Í stefnu Steinbergs kemur fram að hann hafi verið boðaður á lögreglustöð þann 26. febrúar 2016 sem verjandi skjólstæðings síns. „Þegar [Steinbergur] kom á lögreglustöðina, klæddur jakkafötum og með skjalatösku, var hann umsvifalaust handtekinn og færður í handjárn án þess að honum væri tilkynnt sakarefnið með nægilega skýrum hætti,“ segir í stefnunni.

Þar er einnig greint frá því að leitað hafi verið á skrifstofu Steinbergs, öll rafræn gögn afrituð og hald lagt á fjórar tölvur. Þá hafi sex til átta lögreglumenn farið á heimili hans og leitað þar hátt og lágt, þar á meðal í herbergjum dætra hans. Minnst fjórum lögreglubílum hafi verið lagt fyrir utan á meðan.

Þá segir að lögregla hafi gengið mjög langt með því að leggja hald á ógrynni af trúnaðarskjölum sem vörðuðu aðra skjólstæðinga Steinbergs en þá sem komu við sögu í þessu tiltekna máli. Héraðsdómur staðfesti þetta þegar hann gerði saksóknara að skila skjölunum.

„Á þessum tíma var mikil fjölmiðlaumfjöllun um handtöku [Steinbergs] og gæsluvarðhald og stöðu hans sem lögmanns.“ Fregnir af húsleitinni voru í fjölmiðlum og höfðu margir skjólstæðingar [Steinbergs] samband við hann og heimtuðu skýringar á því af hverju lögregla væri að skoða trúnaðargögn þeirra, [Steinbergi] til mikils álitshnekkis,“ segir í stefnunni. Bent er á að það segi sig sjálft að umbjóðendur eða væntanlegir viðskiptavinir lögmanns sem hafi ekki uppfyllt trúnaðarskyldu sína muni leita annað með viðskipti sín.

„Enn þann dag í dag þegar nafn [Steinbergs] er slegið inn á leitarsíðum á Internetinu koma strax upp fréttir um gæsluvarðhaldsvist hans,“ segir auk þess í stefnunni og að ekki sé ólíklegt að það valdi því að mögulegir skjólstæðingar Steinbergs leiti annað.

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudaginn í næstu viku.