Lögmaður sakar bókabúð um þöggun


Lögmaður og fyrrum þingmaður sakar Mál og menningu bæði um ritskoðun og þöggun. Jón Magnússon hefur ritað bloggpistil þar sem þetta kemur fram. Pólitískur rétttrúnaður hefur orðið til þess að sögn lögmannsins að bókin \"Þjóðaplágan Íslam\" hefur verið falin í skúffum í sumum bókarbúðum og þar á meðal hjá Máli og menningu staðhæfir Jón Magnússon.
\"Bókabúð Máls og menningar hefur geymt bókina ofan í skúffu og gætt þess vandlega að engin viðskiptavinur sæi hana en þá sjaldan að einhver sem um spurði fékk hana keypta þá var hún til sölu á um 40% yfir viðmiðunarverði. Þessar aðferðir einnar stærstu bókabúðar landsins er fordæmanleg. Þetta er ritskoðun og yfirverðlagning í því skyni einu að koma í veg fyrir að fólk kaupi bók sem er þegar metsölubók hér á landi og hefur verið á metsölulistum í Noregi frá því að bókin kom út í nóvember,\" segir Jón.
\"Er virkilega svo komið hér á landi að þöggunaröflin vilji ekki að Íslendingar fái að vita um hryllingin sem er í gangi í Evrópu. Já á Norðurlöndum vegna Íslamistanna sem flutst hafa til okkar heimshluta.\"
\"Gæti verið að sá gleðileikur sem fréttamiðlar ríkisins og aflandsfurstans,flytja daglega um mikilvægi þess að hafa opin landamæri yrði með því opinberaður sem hálfsannleikur í besta falli en þó nær ef grannt er skoðað helber lygi.\"
Jón bætir við: \"Af hverju má fólk ekki lesa um staðreyndir, ágætu eigendur Máls og menningar. Hvar fór þetta merka fyrirtæki sem gaf út \"Söngva Satans\" eftir Salman Rushdie á sínum tíma út af veginum og ofan í þöggunarholuna með hinum strútunum. Er ekki tími til komin að þið biðjið neytendur afsökunar á fjandskap ykkar við tjáningarfrelsið og takið til hendinni við að kynna bók Hege Storhaug og seljið hana helst undir viðmiðunarverði. Álagning ykkar yrði góð fyrir því.\"

Um bóklina segir í kynningu: \"Engin trúarbrögð vaxa hraðar en íslam í Evrópu. Bókstafstrúaröfl íslams eru í stöðugu stríði gegn konum, gyðingum, samkynhneigðum, frjálslyndum múslimum og öllum sem hafna undirgefni við kennisetningar íslamstrúarinnar. Öryggi allra er ógnað. Ekki sér fyrir endann á þessari þróun. Fólk horfir áhyggjufullt til framtíðar. Hvernig verða lífsskilyrði afkomenda okkar? Bókin kom út í Noregi í árslok 2015. Hún varð strax metsölubók og hefur vakið miklar umræður þar í landi. Hege Storhaug greinir hér stöðu mála óhikað og hlífðarlaust. Hún telur að Vesturlönd stefni nú í tímabil þar sem bæði siðmenning og lýðræði Evrópu muni eiga undir högg að sækja. Ef ekki eigi illa að fara verði fólk sjálft, íbúar álfunnar, að rísa upp og skora illskuna og bandamenn hennar á hólm. Tíminn sé naumur til stefnu. Á ógnartímum á þessi bók brýnt erindi við allt fólk. Ekki sleppa henni!\"