Lögmaður líkir kastljósinu við hitler

Sigurður Guðni Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og verjandi bankastjóra og útrásarvíkinga, hefur birt harðorðan pistil þar sem hann hjólar í Kastljós Ríkisútvarpsins og notar þar líkingamál sem eftir hefur verið tekið.

Pistill lögmannsins ber yfirskriftina: \"Hinir merktu\"

Sigurður skrifar:
\"Kastljósi Ríkissjónvarpsins er nú beint að öllum þeim, sem tengjast beint eða óbeint aflandsfélögum. Allir eru gerðir grunsamlegir. Fólk hrökklast úr störfum um leið og fréttin spyrst út, aðrir reyna að bera hönd fyrir höfuð sér, en kjósa svo að gefast upp til að reyna að skapa frið; annars eiga þeir á hættu að þeir verði eltir uppi af fulltrúum réttvísinnar, sem starfa hjá Ríkisútvarpinu beint eða sem undirverktakar, eða er það öfugt.\"

Það er þó síðari hluti færslu Sigurðar G. sem vakið hefur meiri athygli og umdeilanleika:

\"Af einhverjum ástæðum virðist enginn sjá neitt athugavert við þau vinnubrögð sem Kastljós Ríkisútvarpsins beitir. Nú er ekkert til sem heitir friðhelgi einkalífs, nú er ekkert til sem heitir að glugga í póst annarra. Nú skiptir bara máli að ala á ólgu og tortryggni alveg eins Hitler og smámennin í kringum hann gerðu.\"

Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, sagði þegar Hringbraut falaðist eftir viðbrögðum vegna skrifa Sigurðar að hún hefði ekki tíma í augnablikinu til svara. Hún væri á fullu að vinna Kastljósþátt kvöldsins í kvöld.