Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður gagnrýnir VÍS harðlega og telur að tryggingafélagið ætti að breyta slagorði sínu frá því að tryggingar snúist um fólk yfir í að tryggingar snúist um arð. Hann segist ekki nenna að láta VÍS hafa sig að fífli
Þetta kemur fram á facebooksíðu lögmannsins sem ritaði í gærkvöld harða færslu um málið. Forsvarsmenn Sjóvá og VÍS standa við tillögur um fyrirhugaðar arðgreiðslur þótt komið hafi fram skiptar skoðanir meðal hluthafa og reiði neytenda sé mikil.
Sigurður G. Guðjónsson skrifar: \" Tryggingar og góð þjónusta - þar sem tryggingar snúast um fólk, er slagorð VÍS hf., sem ætlar að greiða út fimm milljarða arð til að skuldsettir hluthafar geti greitt inn á hlutabréfakaupa lánin frá því í fyrra. Stjórn VÍS hf. gaf skít í viðskiptavini sína í dag og þeir geta vart talist viðskiptavinir félagsins eftir það, heldur aðeins þrælar hluthafanna, sem vilja sinn arð ,,no matter what\".
Best fyrir félagið að taka upp nýtt slagorð sem gæti hljóðað svo: VÍS þar sem tryggingar snúast um arð.
Þó ekki sé samkeppni fyrir að fara á vátryggingamarkaðnum þá held ég að ég hætti viðskiptum við VÍS hf og leiti eitthvað annað með tryggingar mínar.
Nenni ekki að láta Andra Gunnarsson fjárfesti í VÍS hf. og áþekka kújóna hafa mig að fífli,\" skrifar Sigurður í tæpitungulausri gagnrýni og mælir samkvæmt reiðibylgju sem gengið hefur yfir samfélagsmiðlana fyrir margra Íslendinga hönd.