Logi vill ríkisstjórn með viðreisn, pírötum og vinstri grænum

„Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­legum og góðum málum á dag­skrá ef við myndum mynda rík­is­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­fylk­ingin væri kjöl­festu­flokkur og við hefðum svo Við­reisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okk­ur.“ Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í við­tali í Mann­lífi í dag

Þar fer hann yfir for­manns­feril sinn í flokkn­um, en hann tók við Sam­fylk­ing­unni eftir að hún hafði goldið sögu­legt afhroð í kosn­ing­unum 2016, þar sem hún fékk ein­ungis 5,7 pró­sent atkvæða og þrjá þing­menn kjörna. Til að setja það hrun í sam­hengi þá fékk Sam­fylk­ingin 29,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2009 og 20 þing­menn kjörna.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2019-01-18-logi-vill-rikisstjorn-med-vidreisn-pirotum-og-vinstri-graenum/