Logi vill gefa ágústi annað tæki­færi

„Það er vand­ræðalaust fyr­ir mig að gefa hon­um annað tæki­færi,“ sagði Logi Ein­ars­son, formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, um að Ágúst Ólaf­ur Ágústs­son hafi snúið aft­ur til starfa á Alþingi í þætt­in­um Þing­vell­ir í morg­un. Þá sagði hann einnig að þing­flokk­ur­inn væri ein­huga í mál­inu. Logi var spurður um yf­ir­lýs­ingu Ungra jafnaðarmanna þar sem þeir lýsa yfir óánægju með að Ágúst Ólaf­ur hafi snúið aft­ur til starfa á Alþingi á ný eft­ir að hafa verið áminnt­ur af siðanefnd flokks­ins fyr­ir að hafa áreitt konu. Morgunblaðið fjallar um málið.

Sam­fylk­ing­in er 16 þúsund manna flokk­ur […] og það er al­veg viðbúið í slík­um sam­tök­um að það séu ólík­ar skoðanir. Þannig er það ör­ugg­lega líka í þessu máli,“ svaraði Logi.

„Ung­ir jafnaðar­menn höfðu sína af­stöðu og ég get ekki gert neitt annað en bara borið virðingu fyr­ir því. En sjálf­ur hef ég haft þá skoðun að flokk­ur á ekki að hafa umb­urðalyndi til þess að um­bera þessa hegðun eins og birt­ist þarna [í máli Ágústs Ólafs], en hann verður hins veg­ar að hafa umb­urðarlyndi til þess að gefa fólki tæki­færi og hjálpa því aft­ur á lapp­ir ef það sýn­ir skil­yrðis­lausa iðrun. Það hef­ur auðvitað Ágúst gert,“ sagði formaður­inn.

„Kom­ist var að þeirri niður­stöðu að Ágúst hafi brotið siðaregl­ur flokks­ins, en það gæfi ekki til­efni til þess að hann segði af sér trúnaðar­störf­um fyr­ir flokk­inn,“ út­skýrði Logi og sagðist ekki taka af­stöðu til þess mats sem siðanefnd gerði. Hann sagði hins veg­ar að Ágúst Ólaf­ur hafi sjálf­ur gengið lengra en siðanefnd­in lagði til með því að fara í leyfi til þess að meta stöðu sína.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu.