„Logi Bergmann fjölmiðlamaður segir að þrátt fyrir öldur frásagna, um „hvað Ísland sé ömurlegt“ og dýrasta land í heimi, þá þurfi að hafa í huga að laun hafi yfirleitt áhrif á verðlag. Fjölmargir Íslendingar tali um hversu gott sé að njóta lífsins á Spáni eða Ungverjalandi, þar sem verðlag sé talsvert lægra og hægt að fara oft út að borða án þess að skuldsetja sig.“
Þetta sagði Logi Bergmann í pistli í Morgunblaðinu sem Hringbraut vakti athygli á. Logi sagði að meðallaun á Íslandi væru miklu hærri og það varpaði m.a. ljósi á af hverju það væri dýrara að búa hér á landi.
„Það er klárlega rétt að verðlag er mjög hátt á Íslandi og miklu lægra á Spáni. Sérstaklega þegar það kemur að matvælum.“ Þá sagði Logi einnig að ef skoðað væri samhengið kæmi í ljós að laun eru hærri þar sem dýrara er að lifa. Þá sagði Logi einnig.
„Er það bara alveg eðlilegt að valsa með snjallsímann sinn, á íslenskum ráðstöfunartekjum, um útlenskar kjörbúðir með starfsfólk á lúsalaunum, að mynda lága verðið? Deila því svo út um allt og tala um að allt sé hræðilegt á Íslandi? Hittir þetta sama fólk einhvern tímann spænskan eða portúgalskan ellilífeyrisþega sem dásamar hversu gott er að lifa af ellilífeyrinum í heimalandinu?“
Á vef DV er greint frá því að á Facebook-síðu fyrir fólk búsett á Costa-blanca svæðinu á Spánisé Loga svarað fullum hálsi og telja margir Íslendingar sem búsettir eru á Spáni að fjölmiðlastjarnan sé á villigötum. Meðal þess sem fólk benti á var að Logi væri með miklu hærri laun en flestir sem flytja til Spánar.
„Svolítið hart af manni, sem er með yfir tvær milljónir í laun á mánuði og finnst allt í lagi að versla í matvörubúðum þar sem fólk fær 300.000 í laun. Ef það er ekki arðrán, hvað þá?“
spyr maður að nafni Gunnar í Facebook-grúppunni og bætir við:
„Starfsfólk í Mercadona hér á Spáni fær um 1.900 evrur á mánuði í laun og getur leigt sér íbúð á 400-500 evrur á mánuði og getur farið út að borða (þriggja rétta með víni) á 10 evrur.
Starfsmaður í Bónus fær um 350.000 íslenskar krónur á mánuði og getur leigt sér íbúð á 200.000 krónur á mánuði og getur pantað sér pitsu fyrir 4.000 krónur .Hvort er betra?“
Þá segir kona að nafni Þórdís í Facebook-hópnum
„Ég las þetta og er þeirrar skoðunar að hann sé eingöngu að reyna að koma inn sektarkennd hjá Íslendingum sem kjósa að búa á Spáni. Hann hefur auðvitað engan skilning á því að velta fyrir sér aurunum þessi hátekjumaður. Og að þeir séu að nýta sér neyð spænskra eftirlaunaþega er algjörlega fáránlegt.“