Logi segir barnalega trú á Vinstri-græn ein stærstu mistök Samfylkingarinnar

„Það er erfitt að benda á einhvern einn þátt sem olli því að okkur tókst ekki ætlunarverkið - að leiða saman annars konar ríkisstjórn frá miðju til vinstri,“ sagði Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar á flokksstjórnarfundi flokksins í morgun.

Hann bendir á heimsfaraldurinn sem tók sviðið stóran hluta kjörtímabilsins og gaf, að mati Loga, stjórnarflokkunum þremur fjarvistarsönnun í erfiðum pólitískum málum.

„Líklega ofmátum við ákall kjósenda eftir breytingum við þessar aðstæður. Eða þá að þegar á var hólminn komið hafi kjósendur ekki treyst sér til að velja breytingar – sem meirihlutastuðningur er við í mörgum könnunum. Þeir flokkar sem mynda hina frjálslyndi miðju mældust t.d. allir mun betur vikurnar fyrir kosningar en kom upp úr kössunum á kjördag,“ sagði Logi í leit sinni að skýringum á því að Samfylkingunni gekk ekki betur en raun bar vitni.

Hann viðurkenndi einnig að keppinautar flokksins í kosningabaráttunni hafi háð mjög vel heppnaða kosningabaráttu.

Svo benti hann á forsætisráðherra og hennar flokk, sem skýringu á gengi Samfylkingarinnar.

„Ákvörðun Vinstri-grænna í kosningabaráttunni að velja núverandi stjórnarmynstur sem fyrsta valkost, veikti tilboð okkar um annars konar ríkisstjórn - enda byggði sú hugmynd á að að forysta VG gæti hugsað sér að velja sér heppilegri samstarfsfélaga.“

Hann viðurkenndi fyrir sína hönd og flokksmanna að það hefði verið barnaskapur að trúa á vilja VG til samstarfs til vinstri:

„Barnaleg tiltrú okkar á að Vinstri-græn hefðu raunverulegan áhuga á ríkisstjórnarsamstarfi til vinstri – reyndust því ein okkar stærstu mistök.“

Skýringa sé einnig að leita víðar:

„Aðferðir við val á lista, mótun skilaboða, samskiptaháttum, mannauð og forystu flokksins. Og þar ber ég að sjálfsögðu ábyrgð,“ sagði Logi og bætti við:

„Þegar öllu er á botninn hvolft má draga dýrmætan lærdóm af síðustu kosningum: Hann er er sá að umbótaflokkar frá miðju til vinstri verða að koma sér upp nýju leikskipulagi – verða valkostur. Það er stórt verkefni sem okkur ber að taka alvarlega.

Það er mjög umhugsunarverð staða ef félagshyggjuflokkarnir verða til lengri tíma áfram sitt hvorum megin víglínu íslenskra stjórnmála. Þá verður verður erfiðara að ná fram nauðsynlegum réttlætis og umbótamálum fyrir almenning í landinu. Og afleiðingin í reynd; nær alltaf hægri stjórn áfram í landinu.“