Logi segir að almenningur þurfi ítrekað að bjarga einstaklingum sem eru í erfiðri stöðu

Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag að það gerðist allt of oft að almenningur þyrfti að bjarga einstaklingum í erfiðri stöðu og það mætti ekki 

„Ítrekað hefur nefnilega fólkið í landinu þurft að bjarga einstaklingum í erfiðri stöðu með samtakamætti sínum. Það er ekki nóg að stjórnvöld grípi inn gagnvart fólki sem er með gott tengslanet eða hreyfir við okkur á einhvern hátt.“

Áslaug var sammála Loga og sagði að stjórnvöld vildu tryggja það tekið yrði tillit til barna í útlendingamálum.

„Ég tek undir með háttvirtum þingmanni að um þessi mál eigi að gilda jafnræði og við verðum að tryggja það. Það er skýr vilji löggjafans og stjórnvalda að taka sérstakt tillit til hagsmuna barna við umsóknir um alþjóðlega vernd,“ sagði Áslaug.

Umræðurnar áttu sér stað í óundirbúnum fyrirspurnum þar sem Logi og Þorgerður spurðu Áslaugu út í stefnu ríkisins í útlendingamálum. Bæði hrósuðu þau Áslaugu fyrir breytingar á málsmeðferðartíma, sem hún gerði í gær, og komu í veg fyrir að Muhammed Zohair Faisal, sjö ára pakistönskum dreng, yrði vísað úr landi ásamt fjölskyldu sinni.

„Ég ætla að leyfa mér að byrja á því að hrósa dósmamálaráðherra,“ sagði Þorgerður Katrín þegar hún kom fyrst í pontu og sagði breytingin hafi verið mikilvægt skref. Hún hafði hins vegar áhyggjur af því að Áslaug stæði ein innan Sjálfstæðisflokknum þegar kæmi að útlendingamálum og væri „eyland.“ Við þessi orð var Áslaug ekki sátt.

„Ég hef aldrei heyrt aðra eins vitleysu.“