„Það er líka gaman að segja frá einhverju skemmtilegu sem maður upplifir, mæla með einhverju sem kemur manni á óvart og segja hryllingssögur af misheppnuðum ævintýrum. Þess vegna fannst okkur hjónum svo gaman að segja frá því þegar við ákváðum að fara hringinn síðustu helgi á rafmagnsbíl.“
Þetta segir fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann í pistli í Morgunblaðinu sem ber heitir Áhrifalaus valdur. Loga og konu hans, Svanhildi Hólm Valsdóttur var boðið í brúðkaup á Seyðisfirði. Ákváðu þau að nota tækifærið og fara hringinn í kringum landið. Logi og Svanhildur voru af sumum ásökuð að ósekju um að vera áhrifavaldar, öllu heldur að ferð þeirra væri á einhvern hátt kostuð af fyrirtæki.
„Ástkær eiginkona mín hélt nákvæmt bókhald og myndaði flest sem fyrir augu bar og deildi því á netinu. Viðbrögðin voru frábær, svona yfirleitt. Það sem kom mér hins vegar á óvart voru viðbrögð nokkurra sem virtust líta á að við værum í einhverskonar vinnu við að segja frá ævintýrum okkar,“ segir Logi og bætir við:
„Það er nefnilega til stétt, svokallaðir áhrifavaldar, sem hafa það sem starf (reyndar frekar illa launað samkvæmt Tekjublaðinu) að mæla með öllu mögulegu. Þeir fá sem sagt borgað fyrir að segja hversu meiriháttar eitthvað er eða láta mynda sig með einhverjum frábærum vörum. Þá er jafnvel undir hælinn lagt hvort þær séu raunverulega frábærar. Stór hluti þessarar stéttar virðist vera alveg sérlega heitfengur miðað við klæðnað í þessum myndatökum. Það er glatað.“
Logi bætir við að tilhugsunin að ekki sé hægt að treysta því sem fólk mæli með sé ömurleg líka. Hann vilji geta treyst fólki og trúað að það sé raun að mæla með einhverju af einlægni en ekki að reyna að selja einhvern hlut. Auglýsingastofur eigi að sjá um slíkt.
„Sennilega hefur þetta gerst þannig að markaðssérfræðingar hafi komist að því að fólk trúi frekar ef það heyrir eitthvað frá öðru fólki, sem það þekkir eða tengir við á einhvern hátt. Sem hljómar ekki ólíklega. En þegar þú veist að viðkomandi fær borgað fyrir að mæla með einhverju þá fer mesti sjarminn af því,“ segir Logi og endar pistil sinn á þessum orðum:
Ég mæli með því að keyra hringveginn á rafmagnsbíl. Ef þið trúið mér ekki þá getið þið bara prófað það sjálf. Og hananú.