Logi: ees-samningurinn það næstbesta en best væri að vera í esb

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, ritar pistil í Fréttablaðið í dag þar sem hann dásamar EES-samninginn sem hann segir vera það næstbesta fyrir Ísland en ennþá betra væri ef Ísland gengi í ESB.

DV fjallar um pistil Loga.

 

Logi segir að með EES-samningnum hafi Ísland breyst úr 300 þúsund manna markað í 500 milljóna manna markað:

„Á svipstundu fengu Íslendingar frelsi til að ferðast, vinna og mennta sig hvar sem er á Evrópska efnahagssvæðinu. Í gegnum EES-samninginn höfum við líka tekið upp tilskipanir frá Evrópusambandinu um bætt loftgæði og meira jafnrétti. Tilskipanir sem auka réttindi launafólks, t.d. varðandi frítíma og sveigjanleika í vinnu til að sjá um börnin okkar eða nána aðstandendur, sem færa okkur betri og öruggari lyf, gera okkur kleift að vafra á snjallsímanum hvar sem er í Evrópu eins og við værum heima hjá okkur, tryggja rétt okkar ef flugi innan Evrópu seinkar eða fellur niður. Tilskipanir sem hvetja til framleiðslu á umhverfisvænni vörum, tryggja virkari samkeppni og bæta starfsumhverfi ör- og smáfyrirtækja. Allt þetta, og meira til, hefur áhrif á daglegt líf okkar.“

En þó að EES-samningurinn sé Íslandi mikilvægur væri enn betra fyrir Ísland að ganga í ESB.

Sjá nánar hér.