„Það leikur enginn vafi á því að það ríkir mikið frelsi á Íslandi. Sama hvernig það er mælt, þá má alltaf sjá Ísland í einu af efstu sætunum. Sem er náttúrlega frábært enda er frelsið yndislegt.“
Þannig hefst pistill eftir Loga Bergmann í Morgunblaðinu. Þar gagnrýnir Logi Landlækni harðlega sem er á móti frumvarpi um breytingar á lyfjalögum. Verði frumvarpið samþykkt þýðir það að hægt verði að kaupa sum verkjalyf í stórmörkuðum, þá vægari verkjalyf á borð við Panodil og Paratabs, ofnæmislyf og magalyf. Allt lyf sem fást án lyfseðils í apóteki.
Logi segir:
„Það er meira að segja þannig að Lyfjastofnun hefur lokaorðið um það hvaða lyf megi selja. Þannig að það er ekki eins og menn geti bara mætt með sendibíl í búðir og byrjað að selja hvað sem er.
Ég verð að segja að ég skil ekki alveg pælinguna. Þessi lyf er hægt að kaupa í apóteki án lyfseðils. Þeim fylgja nokkuð ítarlegar leiðbeiningar með jafnvel fjarlægustu möguleikum á aukaverkunum og mörg þeirra eru þannig að þú getur keypt eins mikið og þú vilt í apóteki. Í þeim tilvikum þar sem þau eru skömmtuð er ekkert sem kemur í veg fyrir að þú röltir yfir í næsta apótek til að kaupa meira.“
Þá kemur Logi með þessa samlíkingu:
„Ef flugvélar kæmu fram á sjónarsviðið í dag, myndum við leyfa þær? Myndum við ekki fyrst og fremst hugsa að þetta séu nú óttalega hættuleg tæki þar sem fólk er lokað í litlu rými og getur enga björg sér veitt ef eitthvað fer úrskeiðis. Og fyrir utan það: Hver skilur hvernig þessi ferlíki haldast í loftinu? Ekki ég.“
Logi bendir jafnframt á að hann geti gengið „inn í og keypt mér orkudrykki í kassavís og nógu mörg karton af sígarettum til að reykja mig grænan.
En ég get ekki keypt mér Panodil og Nezeril í búð. Ekki ef landlæknir fær að ráða. Ekki á Íslandi en nánast hvar sem er annars staðar í heiminum. Meira að segja í Svíþjóð er hægt að kaupa lausasölulyf í venjulegum búðum. Svíþjóð! Er ekki til einhver regla í heilbrigðri skynsemi sem segir okkur að ef Svíar leyfi eitthvað, þá geti það ekki verið hættulegt?“
Þá segir Logi í lokin:
„Og aftur: Þetta má í Svíþjóð.“