Þyrla sveif yfir Hlíðarhverfi nú rétt fyrir klukkan 19. Leit lögreglu að bankaræningjum dagsins er enn í fullum gangi og hefur lögregla sett upp vegpósta.
Samkvæmt íbúa sen hafði samband við fréttastofu Hringbrautar rétt í þessu hefur lögreglan komið sér fyrir á mótum Stigahlíðar og Bogahlíðar. Að sögn íbúans stöðvar lögregla nú alla bííla sem keyra um. Þá er lýst inn í bíla með ljósi. Lýsir íbúinn þessu öllu sem mjög dramatísku ástandi.
Aðrir fjölmiðlar hafa greint frá handtökum fólks í dag en hvorugur gerenda í bankaráninu hefur náðst. Vera kann að handtökurnar megi skýra með því einu að grunur leiki á vitorði eða samstarfi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið notuð til að lýsa upp svæði, m.a. í Eskihlíðinni og vopnuð sérsveit var þar við leit fyrir stundu.