Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur heimildir fyrir því innan lögreglu að lögreglumenn, langeygir eftir kjarabótum, hafi hringst á og rætt saman á facebook um aðgerðir sem miða að því að svelta ríkissjóð með því að sekta ekki borgara. Ein slíkra aðgerða sé að radarmæla ekki bíla sem fara of hratt. Ríkissjóður verður af háum sektum.
Kristján Þorbjörnsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra, segir í samtali við fréttastofu Rúv að hann merki greinlega breytingu síðustu vikur. Kærur um hraðaakstursbrot komi ekki inn nema sérstakar ástæður séu að baki. Hann segir þó erfitt að meta umfangið eða staðfesta hvað veldur. Lögreglumenn hafi dregið úr svokallaðri frumkvæðisvinnu eins og hraðamælingum í umferðinni og þá dragi einnig úr umferð á haustin.
Ekki er vitað af hve miklum tekjum ríkissjóður verður en önnur spurning lýtur að öryggi borgaranna á götum og þjóðvegum landsins.
Sjá frétt Rúv hér.