Löggan: komdu þér á áfangastað strax

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent út tilkynningu um að íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhluta landsins komi sér á áfangastað sem fyrst. Stormur er að hefjast og búist við að hann nái hámarki í Reykjavík um hádegi. Ekkert ferðaveður verður næstu klukkustundir.

Nokkur fjöldi skóla hefur aflýst kennslu í dag, einkum á Vesturlandi.

Í tilkynningu frá lögreglu segir: \"Við ít­rek­um að þeir sem ekki hafa út­búið öku­tæki sín til vetr­arakst­urs fari ekki af stað og tefji þannig um­ferð vegna van­búnaðar.“