Lögga í leyfi vegna ásakana konu

Tæplega þrítugur lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu fór í upphafi viku í frí frá störfum vegna ásakana á hendur honum fyrir hótanir í garð ungrar konu.
 
Margeir Sveinsson hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu staðfestir að mál af þessu tagi sé til skoðunar og að lögreglumaðurinn sé ekki lengur við störf. Hann vil að öðru leyti ekkert tjá sig um málið.

 

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu RÚV fékk lögregla málið inn á sitt borð á mánudaginn og fór maðurinn strax sendur í frí í kjölfarið.