Lögðu hald á 71 kíló af kannabisefnum, 6 kíló af kókaíni og 8 þúsund e-töflur

Skýrslan Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2018 er komin út. Í skýrslunni er fjallað um tíðni afbrota á höfuðborgarsvæðinu, en markmiðið er m.a. að halda árlega skrá yfir afbrot í umdæminu og mæla þróun í afbrotatíðni milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir enn fremur:

„Álíka mörg fíkniefnabrot voru skráð á höfuðborgarsvæðinu árið 2018 líkt og árið 2017. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og tollgæslan lögðu hald á um 71 kíló af kannabisefnum árið 2018, um 6 kíló af kókaíni og um 3,5 kíló af amfetamíni. Einnig var lagt hald á um 8.000 stykki af ecstasy töflum. Oftast var lagt hald á kannabisefni og amfetamín, en haldlagningum á ecstasy fjölgaði hvað mest á milli ára.“