Voru lögin gerð til að brjóta þau?

Það sem blasir við er samtrygging stjórnmálamanna. Þeir þurfa ekki að axla lagalega eða pólitíska ábyrgð. Kærunefnd jafnréttismála telur að Bjarni Benediktsson hafi brotið jafnréttislög þá fjármálaráðherra. 

Um þetta er skrifað á www.kjarninn.is undir yfirskrift:  \"Má ráðherra brjóta lög?\"

Höfundur er Þórður Snær Júlíusson. Fyrirsögn þessarar fréttar er Hringbrautar er ekki Þórðar Snæs.

 

Rifja má upp að Bjarni er ekki fyrsti ráðherrann til að brjóta lög.

- Ögmundur Jónasson þá innanríkisráðherra braut lög.

- Svandís Svavarsdóttir þá umhverfisráðherra braut lög.

- Jóhanna Sigurðardóttir þá forsætisráðherra braut lög. 

 

Þetta rifjar Þórður Snær upp og tíundar málsatvik. Þetta er góð upprifjun og einkar þörf. Þess vegna treystir einungis rúmlega fimmtungur þjóðarinnar Alþingi og íslenskum stjórnmálamönnum.

Þórður Snær lýkur pistli sínum á því að benda á að það sem við stöndum frammi fyrir er samtrygging stjórnmálamanna alls staðar á hinum pólitíska skala um að þeir þurfi ekki að axla póltíska ábyrgð er þeir brjóta lög.

rtá

Nánar www.kjarninn.is