Lög verði sett sem banni bankabónusa

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, vill láta setja ný lög sem banni allar bónusgreiðslur til stjórnenda banka.

Þetta kom fram í ræðu sem þingmaðurinn flutti undir liðnum Störf þingsins á Alþingi í morgun.

Þorsteinn sagðist ekki kaupa þau rök að í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi yrði að greiða toppum fyrirtækja eins háa bónusa og raun ber vitni. Hann teldi þess virði að taka sénsinn á \"spekileka bankamanna\" út fyrir landsteina. Hann hefði reyndar ekki heyrt af mikilli spurn eftir íslenskum bankamönnum utan landsteinanna.

Þingmaðurinn rifjaði upp að Alþingi hefði sett lög til að reyna að koma böndum á bónusgreiðslur. Í ljósi ofurbónusa nú virtist þörf á að taka fyrrverandi lagasetningu upp og afnema með öllu bónusgreiðslur til bankamanna.

\"Vegna þess að faraldur græðgi gengur nú yfir þjóðfélagið. Hann er með öllu óþolandi og hann þarf að stöðva,\" segir Þorsteinn Sæmundsson.