Ríkisstjórnin afréð seint í gærkvöld að grípa til lagasetningar á verkföll heilbrigðisstarfsmanna á Landspítalanum eftir að fullljóst var í gærdag að frekari samningaviðræður á næstu dögum væru gagnslausar.
Hvorki sáttanefnd né úrsliutafundir síðustu daga mjökuðu deilendum nær hvor öðrum - og má segja að bilið á milli þeirra hvað launaliðinn varðar hafi ekkert mjókkað á þeim langa tíma sem liðinn er frá því félagsmenn BHM hófu verkfallsaðgerðir fyrir ríflega tveimur mánuðum. Eftir að verkfall hjúkrunarfræðinga, sem hófst 27. maí, lagðist af fullum þunga ofan á vinnustöðvun geislafræðinga, lífeindafræðinga, náttúrufræðinga og aðgerðir ljósmæðra á spítalanum má segja að hvert neyðarópið af öðru hafi borist frá landlækni þess efnis að óafturkræfur skaði væri unninn á heilbrigðisþjónustunni á hverjum degi. Hann lýsti fullri ábyrgð á hendur stjórnvöldum um hvernig komið væri fyrir öryggi sjúklinga á Íslandi - og nú hafa .þau gripið til sinna aðgerða.
Ljóst er að lagasetningin mun hleypa illu blóði í fjölmarga heilbrigðisstarfsmenn sem hafa hótað fjöldauppsögnum komi til lagasetningar.
Lagasetningin, sem tekin verður fyrir á þingfundi klukkan 10 í dag að afloknum þingflokksfundum, frestar verkföllunum til 1. júlí.
Í frumvarpi að lögunum er deilendum falið að nýta tímann fram til 1. júlí til að ná samkomulagi á farsælan hátt, ella fari kjaradeilan í gerðardóm. Það kemur í hlut Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegsráðherra að flytja frumvarpið á Alþingi, að sögn Morgunblaðisins í dag eftir nokkur átök á milli oddvita stjórnarflokkanna um hvaða ráðherra ætti að flytja það þingheimi.