Lög­reglan með mikil­væga til­kynningu um notkun flug­elda


Lög­reglan á höfuð­borgar­svæðinu hefur birt mikil­væga til­kynningu á Face­book síðunni sinni sem snúa að skot­eldum, bál­köstum og brennum í til­efni af því að nú er stutt í ára­mótin.

„Í reglu­gerð um skot­elda segir t.d. að á því tíma­bili sem al­menn notkun skot­elda er leyfð, 28. desember til 6. janúar, er með­ferð þeirra þó alltaf bönnuð frá kl. 22.00 til kl. 10.00 daginn eftir að undan­skilinni ný­árs­nótt.“

Þá minnir lög­reglan á að ó­heimilt er að breyta á nokkurn hátt skot­eldi þannig að hann hljóti aðra eigin­leika en fram­leiðandi hans ætlaðist til. Við með­ferð og vörslu skot­elda skal ítrustu var­úðar gætt og ætíð farið eftir skráðum leið­beiningum. Við brennu og í næsta ná­grenni við hana er öll með­ferð flug­elda og annarra skot­elda sem hætta stafar af vegna ferils þeirra eftir tendrun bönnuð. Þar er að­eins leyfi­legt að nota stjörnu­ljós og blys, þó ekki skot­blys.

Þá er sömu­leiðis gott að vita að stærð og um­fang á bál­kesti skal tak­marka við brennu­tíma, þ.e. að góður logi standi ekki lengur en skemmtan við brennu, eða um 4 klst. Séð skal til þess að ekki logi lengur í brennu en í 14 klst. Lítil brenna má að jafnaði ekki vera nær í­búðar­byggð en 100 metrar og stór brenna ekki nær en 300 metrar. Engin brenna má vera nær mat­væla­fram­leiðslu og öðrum við­kvæmum rekstri en 400 metrar. Bál­köst skal ekki stað­setja þar sem hætta er á að eldur eða neista­flug geti kveikt í gróðri, til dæmis sinu.

Þá hvetur lög­reglan alla til að nota þar til gerð hlífðar­gler­augu þegar flug­eldar, bál­kestur og brennur eru annars vegar.