Verulegar líkur eru taldar vera á því að stjórnvöld setji lög á verkföll ríkisstarfsmanna á Landspítalanum í dag eða á morgun, en þau myndu ná til hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra, geislafræðinga, lífeindafræðinga og náttúrufræðinga á spítalanum.
Verkfall fjögurra síðastnefndu hópanna hefur staðið yfir í á þriðja mánuð án nokkurs árangurs við samningaborðið - og er orðið ljóst að ríkisvaldið mun ekki semja um launaliðinn við félagsmenn BHM umfram það sem gerst hefur á almennum vinnumarkaði. Það merkir í huga BHM að menntun þeirra verði ekki metin til fjár og að þeir muni áfram dragast aftur úr viðmiðunarhópum.
Jafnvel enn meira ber í milli í deilu ríkisins og hjúkrunarfræðinga, en þeir hafa verið í verkfalli í 15 daga. Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur metið það svo að launatilboð ríkisins í deilunni merki að ríkisvaldið meti hvert ár í hjúkrunarnámi á 12 þúsund krónur umfram lægstu laun í landinu, með öðrum orðum verði byrjendalaun hjúkrunarfræðinga eftir nám sitt rétt undir 360 þúsundum króna ef fallist verði á tillögur stjórnvalda. Þarna muni svo miklu í kröfum og tilboði að vart eða ekki taki því að tala saman á þessum nótum.
Þá reyndist sáttanefndin andvana fædd í kjaradeilu hópanna við ríkið, en nokkuð ljóst var að henni var reynt að koma á fót af hálfu ríkisins til að koma nýju lífi í samningaviðræðurnar. Það mistókst á mánudag.
Boðað hefur verið til funda í deilunum í dag. Gæti þar einn tómahljóðs er vart annað í stöðunni en lagasetning að mati þeirra sem gerst hafa fylgst með framvindu mála í báðum herbúðum, en það er vel að merkja tvíbeitt sverð og gæti hæglega haft í för með sér fjöldauppsagnir í þeim fimm mikilvægu starfsstéttum sem hér um ræðir og þar með verulegan vanda í mönnum Landspítalans.