Loftslagsverkfall og ruslið burt

Sveitarstjórnarráðstefnu VG sem stóð í allan dag á Akranesi, lauk undir kvöld með því að gestir réðust í plokk umhverfisráðherra.  Aðgerðin rímaði vel við efni fundarins sem fjallaði bæði um umhverfis- og heilbrigðismál og héldu bæði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra erindi á fundinum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vinstri grænum.

Þar segir enn fremur að loftslagsverkfall ungmenna var sérliður á dagskránni, en Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, formaður Landssambands íslenskra stúdenta, ein af skipuleggjendum Loftlagsverkfallsins, sagði frá hugmyndafræði og kröfum verkfallsins en hún er búsett á Akranesi.

Átján sveitarstjórnarráðsliðar VG héldu fundinn sem einnig var vel sóttur af þingmönnum, almennum VG félögum og fleiri gestum, en um sjötíu manns mættu á opna hluta fundarins. 

Bjarni Jónsson, sveitarstjórnarmaður í Skagafirði skipulagði sveitarstjórnarþingið og stýrði fundi.  Heimamenn og langt að komnir sveitarstjórnarmenn tóku svo þátt í plokkinu með umhverfisráðherra að loknum fundi. 

Plokkaðir voru tveir kílómetrar kringum vitann og var pallbíll fenginn ofan af  Mýrum til að koma ruslinu á sinn stað.