Þing Norðurlandaráðs, það 67. í röðinni verður formlega sett í Hörpu í dag klukkan 14:30 og stendur til 29. október. Þingið hefst með ávarpi forseta Alþingis, Einars K. Guðfinnssonar, og ávarpi forseta Norðurlandaráðs, Höskuldar Þórhallssonar.
Í kjölfarið hefst leiðtogafundur norrænu forsætisráðherranna um möguleika á auknu og nánara samstarfi Norðurlanda. Þá verða kynntar skýrslur norrænu samstarfsráðherranna um afnám stjórnsýsluhindrana. Því næst kynnir forsætisráðherra Finnlands formennskuáætlun Finna í Norrænu ráðherranefndinni 2016.
Meginþema þingsins er norræn framtíðarsýn og alþjóðamál en meðal fundarefnis má nefna óundirbúinn fyrirspurnatími norrænu umhverfisráðherranna sem verður miðvikudaginn 28. október kl. 11–12. Gera má ráð fyrir umræðum m.a. um loftslagsmál og fyrirhugaða alþjóðlega loftslagsráðstefnu í París í desember. Sama dag kl. 14:00–16:30 verða umræður með norrænu utanríkisráðherrunum um alþjóðamál, ásamt Christian Friis Bach, framkvæmdastjóra efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna. Meðal umræðuefna verða málefni Úkraínu, öryggismál og flóttamenn.
Handhafar verðlauna Norðurlandaráðs verða kynntir við verðlaunaafhendinguna í Eldborg í Hörpu 27. október kl. 19:30. Fimm verðlaun verða afhent: bókmenntaverðlaun, barna- og unglingabókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun og náttúru- og umhverfisverðlaun.
Fulltrúar á þinginu verða forsætisráðherrar, aðrir ráðherrar og þingmenn frá öllum norrænu ríkjunum og sjálfstjórnarsvæðunum. Íslandsdeild Norðurlandaráðs skipa: Höskuldur Þórhallsson, formaður, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Elín Hirst, Róbert Marshall, Steingrímur J. Sigfússon, Valgerður Gunnarsdóttir og Vigdís Hauksdóttir