Loftslagsflóttamenn gætu komið hingað

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að enn sé von um að hægt verði að koma í veg fyrir verstu afleiðingar loftslagsbreytinga.

Þetta segir Ólafur í þættinum Morgunkaffið á Rás 2 og Rúv.is greinir frá.

Í fréttinni segir orðrétt: Ólafur segir að bandalag borga, upplýstra stórfyrirtækja og vísindanna auk meðvitaðs almennings gefi vonir um að bregðast megi við af skynsemi. 

Í þættinum var eftir Ólafi haft:

„Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvað [afleiðingarnar] eru hrikalegar því ofsaveðrin sem eru í fréttum hérna hvað eftir annað munu verða enn erfiðari viðureignar. Hitastigið jafnvel í Suður-Evrópu mun verða þannig að það verður nánast óbyggilegt. Jafnvel London á síðasta sumri var allt að því óbyggileg því hún var ekki byggð fyrir það hitastig sem var,“

Ólafur segir áhrifin geta haft á Ísland. „Þannig að við getum farið að horfast í augu við það að hingað komi fólk eða leiti fólk sem yrði einskonar loftslagsflóttamenn. Ekki fátækt fólk heldur fólk vill búa í landi sem hefur þolanleg dagleg veðurskilyrði.“