Loftslagsbreytingar helsta ógn mannkyns

Alþjóðleg vandamál vegna loftslagsbreytinga eru helsta áhyggjuefni almennings í flestum ríkjum heims samkvæmt nýrri rannsókn. Ólík viðhorf eru þó á milli heimsálfa, en hryðjuverkasamtökin ISIS eru efst á lista sem  helsta ógn mannkyns meðal íbúa Vesturlanda og Miðausturlanda. 

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Pew Research Center. Rúmlega 45 þúsund manns frá 40 ríkjum heims tóku þátt í rannsókninni sem snéri að stærstu alþjóðlegu vandamálum sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag.

Sex alþjóðlegar ógnir voru oftast nefndar í rannsókninni. Helstu niðurstöður hennar benda til þess að loftslagsbreytingar séu ofarlega á baugi, en loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna verður haldin í París í lok árs. Töluverð vitundarvakning hefur orðið um loftslagsbreytingar og hlýnun jarðar undanfarið og má gera ráð fyrir að það hafi haft áhrif á svör þátttakenda.  

Loftslagsbreytingar þóttu sérlega mikil ógn í ríkjum Suður Ameríku og Afríku, en meira en helmingur svarenda í öllum ríkjum Suður Ameríku sem tóku þátt í rannsókninni sögðust óttast þær mest. Áhyggjur vegna loftslagsbreytinga voru minnstar í ríkjum Evrópu, en þar nefndu flestir svarenda hryðjuverkasamtökin ISIS sem helstu alþjóðlegu ógnina. Hvergi mátti sjá loftslagsbreytingar sem eitt af tveimur stærstu alþjóðlegu vandamálunum meðal ríkja Evrópu. 

Almenningur í 14 ríkjum af 40 töldu hryðjuverkasamtökin ISIS vera helstu alþjóðalegu ógn heimsins. Íbúar í Bandríkjunum, Kanada, Ástralíu sem og áðurnefndrar Evrópu nefndu samtökin oftast. Að meðaltali 70% svarenda í Evrópu sögðust vera mjög áhyggjufull vegna hryðjuverkasamtakanna. 

Efnahagslegur óstöðugleiki var einnig nefndur í fjölmörgum ríkjum og mældist sem annar stærsti vandinn í nær helmingi þeirra ríkja sem tóku þátt í rannsókninni. Kjarnorkuáætlun Íran, spenna á milli Rússlands og annarra ríkja heims og deilur á milli Kína og nærliggjandi ríka var sömuleiðis nefnt sem stærstu vandamál heimsins í dag.