Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lagði höfuðáherslu á mannréttindi og aðgerðir gegn loftslagsbreytingum í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hann sagði að loftslagsbreytingar væru að verða ein helsta ógn við heimsfrið og skipulag.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í lok vikunnar. Mannréttindamál, sjálfbær þróun og stríð í Sýrlandi og Jemen voru á meðal þess sem ráðherra fjallaði um í ræðu sinni.
„Sameinuðu þjóðirnar hafa gegnt stóru hlutverki við að stuðla að friði og framþróun. Flestir lífskjaravísar segja jákvæða sögu – söguna af okkar sameiginlega árangri. Það er saga sem við ættum að segja oftar,“ sagði Guðlaugur Þór í upphafi ræðunnar.
Nánar um ræðu Guðlaugs Þórs hér á vefsíðu Stjórnarráðsins.