Loftgæði með versta móti í borginni

Reykvíkingar hafa oft á liðnum vetri þurft að skafa af rúðum bíla sinna í morgunsárið, en að morgni þessa annars dags sumars bar nýrra við; nú þurfti nánast að skafa slykju af loftryki af hverjum bílnum af öðrum sem bendir eindregið til þess að loftgæðin á Reykjavíkursvæðinu séu með versta móti.


Umhverfisstofnun rekur loftmælistöðvar um allt land í samvinnu við fleiri aðila. Í þeim er mælt svifryk og önnur efni í andrúmsloftinu. Samkvæmt mælingum gærdagsins og það sem af er morgni hefur svifryk verið yfir viðmiðunarmörkum og gæti haldist svo alla næstu viku í ljósi þurrakuldans sem er í kortunum.

 

 

Á vef Umhverfsstofnunar er meðal annars þessar upplýsingar að hafa: Áhrif svifryks á heilsu fólks er að mjög miklu leyti háð stærð agnanna. Fínar agnir eru heilsufarslega mun hættulegri en þær grófu, en agnir minni en 10 µm eiga auðveldara með að ná djúpt niður í lungun og geta því safnast þar fyrir. Þegar svo langt er komið, fara áhrifin alfarið eftir því hversu lengi og hversu oft persónan andar að sér menguðu lofti og hvort hættuleg efni eru í rykinu eða loða við það, t.d. þungmálmar eða PAH (fjölarómatísk vetniskolefni). Almenningur finnur  þó mismikið fyrir áhrifum svifryks en aldraðir, börn og þeir sem eru með undirliggjandi öndunarfæra- og/eða hjartasjúkdóma eru viðkvæmastir.