Loftbrú á leik hollands og íslands

Fjöldi Íslendinga sem lagt hefur leið sína til Amsterdam í Hollandi í dag og síðustu daga nemur á annan tug millilandaflugvéla, en talið er að rösklega 3.000 Íslendingar verði á leiknum, eða sem nemur nærri prósenti þjóðarinnar.

Að sögn forráðamanna Tólfunnar, stuðningsfélags íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu hafa menn þar á bæ aldrei áður kynnst viðlíka stemningu á meðal íslenskra spakunnenda og nú ríkir á götum höfuðborgar Hollands, en þar sést reifur Íslendingur á hverju götuhorni.

Eftir því sem best er vitað er þetta mesti fjöldi Ísldndinga sem safnast hefur á einn kappleik í sögu íslensks landsliðs í útlöndum.

\"Þetta verður einn stærsti landsleikur sem Ísland hefur spilað. Það er pressa á Hollendingum að skora hjá okkur og helst snemma í leiknum til að létti smá pressu af sér. Þar geta falist ákveðnir möguleikar fyrir okkur.\" segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari í knattspyrnu við RÚV í morgun, en hann býst við allt öðruvísi leik frá Hollendingum heldur þegar liðin mættust í Reykjavík og jafnvel þó nokkrum breytingum á byrjunarliði Hollands frá síðasta leik.

\"Það verður örugglega meiri ákafi í leik þeirra heldur en var í leiknum heima. Þeir spiluðu frekar hægt og við höfum notað mörg myndbandsbrot úr þeim leik um hvernig við vörðumst þeim. Þeir hafa líka skoðað myndbönd úr þeim leik og ætla örugglega að spila hraðar og kannski ógna okkur meira heldur en þeir gerðu. Þeir voru mjög staðir í þeim leik og gerðu okkur kannski auðvelt fyrir með að verjast þeim. Eins og vísbendingar eru um býst ég við að leikmenn þeirra verði hreyfanlegri og sókndjarfari heldur en þeir sem hafa verið að spila.\"