Lofa leiðandi hlutverk íslands

Robert S. Work aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að \"strategískt mikilvægi\" Íslands hafi ekkert breyst í áranna rás, að því er fram kom í samtali hans og Gunnars Braga Sveinssonar í Pentagon í vikunni.

Ráðherrarnir ræddu þróun varnar- og öryggismála í Norður-Evrópu, en nú er um áratugur frá því Bandaríkjamenn lokuðu herstöð sinni á Íslandi og fóru þaðan með allt sitt lið og tækjaafla. Work sagði að Ísland væri enn sem fyrr lykilbandamaður Bandaríkjamanna á norðurslóðum og að staðsetning landsins væri mjög mikilvæg í hernaðarlegum skilningi eins og hún hafi alltaf verið.

Ráðherrarnir ræddu varnir á norðurslóðum í ljósi aukinna umsvifa rússneska  heraflans og aðgerða Rúsa í Úkraínu og víðar, en Hringbraut hefur í fréttum sínum síðustu vikur sagt frá viðbrögðum Norðmanna og Svía vegna breyttra aðstæðna, en bæði ríkin hafa aukið viðbúnað sinn á norðurslóðum vegna aðgerða Rússa.

Work lofaði leiðandi hlutverk Íslands í að efla svæðisbundið samstarf á sviði norðurslóða, svo sem varðandi leit og björgun.

Gunnar Bragi sagði að Bandaríkjanna biði vandasamt hlutverk, en þau tækju við formennsku í Norðurskautsráðinu á tímum væringa í Evrópu og aukinnar spennu í samskiptum við Rússa.