„Forskot á fasteignamarkaði“ heitir leiðin sem Samfylkingin kynnti í dag sem lausn á húsnæðisvanda ungs fólks. Leiðin er hluti af kosningastefnu flokksins sem kynnt var á blaðamannafundi. Hún gengur út á að greiða út vaxtabætur fyrirfram til húsnæðislausra til næstu fimm ára svo viðkomandi geti fjármagnað útborgun við húsnæðiskaup.
Útborgun til að kaupa íbúð er eins og þekkt er stærsta hindrunin á vegi fólks inn á húsnæðismarkaðinn.
Samkvæmt tillögunni getur fyrirframgreiðslan styrkt fólk til kaupa á íbúð um 3 milljónir fyrir fólk í sambúð, 2,5 milljónir fyrir einstætt foreldri og 2 milljónir fyrir einstakling. Forskotið fá þeir sem ekki eiga íbúð og ættu rétt á vaxtabótum.
Á fundinum kom fram að Samfylkingin, komist hún til valda, muni taka upp nýtt kerfi húsnæðisbóta, hækka skerðingarmörk og styðja betur við barnafjölskyldur. Þá muni vaxtabætur ráðast af fjölda barna sem áður hefur ekki verið gert.
Á vef Samfylkingarinnar kemur ekki fram hve mikil útgjöld ríkissjóðs yrðu við slíkar aðgerðir eða nánar um útfærslu.