Loðnuleit í yfir 100 daga ekki borið árangur

Mikið hefur verið lagt í leit að loðnu í allan vetur en leitin hefur ekki borið árangur. Rannsóknaskip hafa leitað í um 40 daga og veiðiskip í alls 76 daga. Á mánudag var formlegri leit hætt en Hafrannsóknastofnun mun áfram fylgjast með fréttum af loðnu fyrir norðan land og gera ráðstafanir þyki tilefni til, þar sem hrygningarloðna hafi t.a.m. veiðst við Húnaflóa eftir miðjan marsmánuð í fyrra. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.

Það er ekki einungis loðnan sem hefur valdið áhyggjum því fyrstu mælingar á árganginum sem bera á uppi veiðar næsta vetrar gáfu ekki tilefni til bjartsýni og þá er uppi óvissa varðandi fleiri uppsjávartegundir.

Loðnubresturinn hefur reynst sveitarfélögum erfiður. Elías Pétursson, sveitarstjóri í Langanesbyggð, segir þetta þýða mikið tekjutap fyrir starfsfólk á Þórshöfn, í nærbyggðum og fyrir sveitarfélagið Langanesbyggð. „Loðnubresturinn er mikið högg fyrir þorp þar sem eru rúmlega 200 manns á vinnualdri. Við sem lifum í nábýli við og af náttúrunni höfum séð ýmislegt áður og Langanesbyggð kemst í gegnum þetta. Það má þakka styrkri stöðu sem hefur náðst á síðustu árum og svo eigum við aðeins í hlöðunni. Það er þó morgunljóst að við þurfum að fara inn að beini og þetta áfall kemur niður á fjárfestingum.“