Loðnubresturinn hefur gífurleg áhrif á fjölda sveitarfélaga. Þeirra á meðal er Vestmannaeyjabær. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjabæ, var gestur Sigmundar Ernis í frétta- og umræðuþættinum 21 á mánudagskvöld. Þar ræddi hún um þau víðtæku áhrif sem bresturinn hefur á sveitarfélagið.
Samfélagið í Vestmannaeyjum verður í heildina af feiknarlegum fjárhæðum. „Við erum búin að fara svona aðeins í gegnum þetta. Við vitum náttúrulega að bæði vertíðin 2017 og 2018, hún gaf 18 milljarða í heildartekjur fyrir þjóðarbúið. Þar sem einn þriðji loðnukvótans er í Eyjum þá má gróflega reikna með að það sé í kringum sex milljarðar, sem áfallið er fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum. Þetta er mikill skellur,“ segir Íris.
Bæjarfélagið sjálft verður af miklum tekjum. „Það sem við erum búin að láta reikna út fyrir okkur er þetta beina tekjutap, sem er þá gagnvart útsvarinu, sem er þá bæjarsjóður, og svo gagnvart hafnarsjóði. Þetta voru rúmlega 140 milljónir gagnvart okkur, sem er í prósentum talið 4,2 prósent af útsvarstekjunum, miðað við vertíð eins og hún var í fyrra, og 8,3 prósent af tekjum hafnarsjóðs, miðað við tekjurnar í fyrra. Þetta tekur í,“ segir hún.
Aðspurð um hvort hafi verið til plan b hjá sveitarfélaginu ef loðnubrestur yrði að staðreynd segir Íris: „Málið er það að við erum sjávarútvegssveitarfélag, og uppsjávarsveitarfélag, og sú góða vinnuregla hefur skapast í Vestmannaeyjum gegnum árin að tekjuþátturinn er varlega áætlaður. Áfallið er gríðarlega mikið og það breytir því ekki, en tekjurnar hafa verið mjög varlega áætlaðar þannig að það er okkar mat, allavega að svo stöddu, að taka ekki upp tekjuþátt fjárhagsáætlunar. Við vonumst til þess að geta komist í gegnum þetta. Við erum með ákveðið svigrúm. [Áætlaðar] tekjur sveitarfélagsins fyrir fjárhagsáætlun 2019, við áætluðum þær lægri heldur en rauntekjur 2018. En þetta er náttúrulega gríðarlegt áfall fyrir sveitarfélagið. Þetta eru 620 milljónir í launatekjur fyrir rétt rúmlega 280 heimili í Vestmannaeyjum. Þetta eru 16 prósent fjölskyldna í Vestmannaeyjum sem verða fyrir þessu tekjutapi.“
„Þegar þú ert með sveitarfélög sem eru sjávarútvegssveitarfélög, þá er það bara þannig að daginn sem er ákveðið að gefa ekki út loðnukvóta, þá finnum við fyrir því í Vestmannaeyjum,“ bætir hún við.
Viðtalið við Írisi í heild sinni er að finna hér: