Lobbíistatilkynning

Ég mætti á fund í gær á Skólabrú þar sem rekstraraðilar ferðaþjónustu á hálendinu buðu þingmönnum á fund til þess að fjalla um stofnun hálendisþjóðgarðs. Í boði voru einhverjar fínar snittur og samtal við einhverja 20 rekstraraðila (lobbíista).

Fyrsta spurningin mín á þeim fundi var hvort fólk áttaði sig á því hversu óviðeigandi svona lokaður fundur væri, þarna væri að vera að fjalla um mál þar sem opinberar umsagnir ættu að koma frá þessum aðilum sem hægt væri að ræða í opinberri samfélagsumræðu. Það er vægt til orða tekið að fólk tók ekki vel í þá spurningu og einn þingmaður meira að segja afsakaði fyrir framkomu mína. Það var mjög augljóst að nákvæmlega enginn þarna inni skildi hvernig samskipti kjörinna fulltrúa og lobbíista eiga að vera.

Til þess að hafa það annars á hreinu, það er í fína lagi fyrir fólk að hittast og svoleiðis en það á að greina frá því. Slíkir fundir, þrátt fyrir að það sé greint frá þeim, hafa áhrif á aðkomu kjörinna fulltrúa að málefnum. Nú hafa lobbíistar hitt mig á lokuðum fundi og sagt mér eitthvað sem enginn annar getur skoðað. Það þýðir að allur minn málflutningur í því máli verður að skoðast í því ljósi. Það á ekki að gera lítið úr svona vinnubrögðum, það hefur almennt séð áhrif á fólk að þiggja veitingar eða aðrar \"smá\" gjafir. Það býr til velvild og hefur áhrif, almennt séð. Ég þáði engar veitingar á þessum atburði nema vatn og leið satt best að segja illa á þessum fundi vegna þessara mála. Ég var að gera mig vanhæfari til þess að fjalla um málefni hálendisþjóðgarðs með því að vera á þessum fundi í ásýnd einhvers hluta samfélagsins.

Allavega, ég hvatti þessa rekstraraðila til þess að senda allt sem þau höfðu að segja sem umsögn í samráðsgátt stjórnvalda og til þingsins þegar málið kemur þangað. Ég bað þau um að skafa ekkert utan af hlutunum og tala ekki undir rós því þau höfðu vissulega ýmsar ábendingar sem er ekkert óeðlilegt að stjórnvöld svari varðandi þetta mál. Hvað nákvæmlega það er, þá einbeitti ég mér að því að muna það ekki því þær spurningar eiga að koma í opinberri umsögn.

Ég endurtek, það er ekkert \"að\" því að þingmenn hitti og tali við fólk. Það getur hins vegar varðað samskipti við lobbíista sem eiga að vera skráð og upplýst því, eins og kom fram á fundinum, að ferðaþjónustan hefði aldrei \"átt\" þingmann. Að mínu mati skiptir það máli að fólk viti hver á þingmanninn sem það er að kjósa.

Það er verið að vinna frumvarp um lobbíista, ég hlakka gríðarlega til þess að þingið fái það til umfjöllunar.