Lóan er komin að kveða burt snjóinn - og það er ekki laust við að landsmenn andi léttar eftir þá hræmulegu tíð sem virðist vonandi vera að baki. Vorboðimnn ljúfi sást í Breiðdal í gærdag og er heldur fyrr á ferðinni að þessu sinni en einatt áður. Þessi ljúfi vorboði kemur að jafnaði til landsins 23. dag marsmánaðar, en ekki er vitað til þess að hún hafi mætt fyrr til landsins en 12. mars, sem gerðist fyrir þremur árum.
Heiðlóa er mófugl og farfugl á Íslandi. Hún hefur vetursetu á Bretlandseyjum og suður þaðan með ströndum Vestur-Evrópu allt til Gíbraltar og Norður-Afríku. Hún er alfriðuð á Íslandi.
Fyrst er lóan kemur til landsins dvelur hún meðfram ströndum en leitar svo að varpstöðum í móum, mýrum eða heiðum. Hreiðurgerð er ekki mikil hjá henni, aðeins laut í lyngmóa eða grasi útbúið með grasstráum eða laufblöðum. Varp hefst seinni hluta maí og verpir hún oftast fjórum eggjum sem eru grágul eða mógul með mósvörtum dílum á litin. Eftir um það bil 3 vikur brjótast ungarnir út. Báðir foreldrarnir taka þátt í að liggja á egginu. Í lok júlí flýgur hún með ungana aftur suður til vetrardvalar og flýgur lóan þá í hópum.