Lóan er komin.
Fyrstu lóurnar sáust í Flóanum í dag „á tilsettum tíma nú rétt fyrir páska,“ eins og það er orðað í frétt á vef Fuglaverndar.
Aðeins tvisvar sinnum hafa lóurnar komið seinna en í dag, 1999 og 2001, en meðalkomudagur þeirra 1998-2017 hefur verið 23. mars.
„Um helmingur af heimsstofni lóunnar verpur hér á landi, eða um 300.000 pör, svo ábyrgð okkar gagnvart þessum vorboða er mikil og nauðsynlegt að vernda búsvæði hennar. Vetrarheimkynnin eru í Vestur Evrópu, aðallega á Írlandi en einnig í Frakklandi, Portúgal og á Spán,\" segir í frétt Fuglaverndar.