Lóan er komin að kveða burt snjóinn



Kannski eru Íslendingar ekki bundnir neinum vorboða eins ljúfum böndum og sjálfri lóunni, en óræk sönnun þess að lóan er komin hefur verið birt á netmiðlum í dag.
Guðmundur Falk tók mynd af fyrstu lóunni sem vitað er til að hafi verið fest á filmu þetta árið við Garðskagavita.
Eftir því sem fram hefur komið í fréttum er lóan seinna á ferð en í fyrra. Meðalkomutími fuglsins undanfarna tvo áratugi er 23. mars eftir því sem fram kemur á visir.is.


Í kvæði Páls Ólafssonar sem sérhvert mannsbarn hér á landi kunni lengi vel, segir:


Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefir sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.