Lóa og lífið: friðrik og jógvan mæta

Þátturinn Lóa og lífið sem sýndur er í kvöld á Hringbraut er heldur betur á skemmtilegu og músíkölsku nótunum, en þar fær Lóa til sín reynsluboltana Friðrik Ómar og Jógvan.

Þessir landskunnu tónlistarmenn hafa unnið saman í íslenskum sem og í færeyskum tónlistar- og skemmtanabransa í mörg ár - og hafa frá miklu að segja þegar kemur að allskonar bransasögum.

Lóa fær þá til að tala um samstarfið og leyndarmálin á bak við hið áralanga og farsæla samstarf þeirra. Friðrik Ómar og Jógvan eru ekki ókunnir íslensku þjóðinni en hafa í mörg ár sungið sig inní hjörtu Íslendinga, en þeir taka upp gítarinn og slá á nokkra tóna fyrir Lóu, ásamt því að segja frá skemmtilegum bransasögum.

Ekki að missa af einstaklega skemmtilegum þætti af Lóa og Lífið á Hringbraut í kvöld kl. 20:00, en þátturinn er svo endursýndur klukkan 22:00 og allan daginn á morgun.