Launaskrifstofa ríkisins hélt eftir stórum hluta launa ljósmæðra á Landspítalanum fyrir síðasta mánuð, enda þótt þær væru aðeins tvo daga af honum í verkfalli. Ljósmæðurnar fengu sem nemur 60% af launum sínum útborgað, en hefðu átt að fá um 90% af þeim greidd.
Þetta kom fram í fréttum RÚV í morgun en þar sagði formaður Ljósmæðrafélagsins að ljósmæður á spítalanum væru að vonum óánægðar með þessa ákvörðum launaskrifstofunnar, en skýringar hefðu ekki enn fengist á því af hverju hún haldi svo ríkum skerfi af launum ljósmæðranna eftir hjá sér.
Á morgun er réttur mánuður frá því Bandalag háskólamanna hóf verkfallsaðgerðir sínar sem hafa haft veruleg áhrif á fjölmörgum vinnustöðvum, jafnt spítölum sem og á almennum vinnumarkaði, en samkvæmt fréttum í morgun er farið að bera á kjötskorti vegna verkfalls dýralækna innan BHM.
Bandalagið leggur ríka áherslu á að menntun félagsmanna sinna sé metin til launa, en raunin sé allt önnur.