„Yfirgnæfandi meirihluti“ ljósmæðra á Landspítalanum ætla frá og með þriðjudeginum 1. maí ekki að vinna þar umfram vinnuskyldu sína þar til kjarasamningur hefur verið gerður við Ljósmæðrafélag Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá ljósmæðrum á fæðingarvakt og meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítalans.
Þar segir að þær muni ekki svara tilkalli spítalans um að mæta til vinnu þegar aukið álag er á spítalanum eða þegar um veikindi annara starfsmanna er að ræða. Á Landspítalanum eru flestar fæðingar eða um þrjú þúsund fæðingar á ári. Álagið á spítalanum hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum með tilkomu ákvörðunar ríkisvaldsins um að fækka fæðingarstöðum úti á landi,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni.