Ljósi varpað á heimsmanninn thor thors

Hátíðardagskrá Hringbrautar heldur áfram í kvöld á níunda degi jóla, en þá verður tekin til sýningar heimildarmynd Hans Kristjáns Árnasonar um heimsmanninn Thor Thors.

Thor var í framvarðarsveit íslenskrar utanríkisþjónustu um miðja síðustu öld og mótaði hana að mörgu leyti, enda fór þar bæði frumherji og leiðtogi á sínu sviði. Hann varð sendiherra í Bandaríkjunum og fyrsti fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.

Eftir lögfræðipróf heima á Íslandi stundaði hann framhaldsnám í hagfræði í Cambridge og París áður en hann réðist til starfa sem framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Kveldúlfs sem fjölskylda hans hafði rekið um árabil. faðir hans var Thor Jensen, umsvifamikill athafnamaður, og meðal systkina hans var Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra um árabil.

Thor varð þingmaður Snæfellinga fyrir Sjálfstæðisflokkinn á árunum 1933 til 1941, en gerðist að svo búnu forstjóri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda til ársins 1940 þegar hann helgaði sig íslenskri utanríkisþjónustu.

Thor lést 1965, 62ja ára að aldri.

Sýning heimildarmyndarinnar um Thor Thors hefst klukkan 20:00 í kvöld.