Engin frekari vandkvæði hafa komið fram frá því kveikt var á ljósbogaofni kísilvers United Silicon hf í Helguvík. Kveikt var á ofninum hinn 25. maí sl. eftir að rafskaut ofnsins brotnaði svo slökkt var á ofninum.
Kristleifur Andrésson umsjónarmaður öryggis- og umhverfismála hjá United Silicon hf segir að síðan aftur var kveikt á ofinum hafi fátt komið upp og hlutirnir hafi gengið samkvæmt áætlun.
Rannsóknir á loftmælingum standa enn yfir á þeim átta mælistöðvum sem fylgjast með loftgæðum í kjölfar þess að aftur var kveikt á ofninum. Kristleifur segir að á þessari stundu sé ekki hægt að segja hvenær vænta má niðurstöðu úr rannsókn loftgæða. Um þetta er fjallað í Morgunblaðinu.
rtá
Nánar www.mbl.is